Aðalsíða Undirbúningur

Undibúningur fyrir ferðalag

Það skiptir öllu upp á vel heppnað ferðalag að vera með góðan undirbúning. Margir vilja meina að skemmtilegustu ferðalögin verða til þegar þau eru óvænt, en því miður er ekki allt óvænt jafn skemmtilegt. Ýmislegt er hægt að fyrirbyggja með góðum undirbúningi svo sem:

  • Þú mætir á landamæri lands, en færð ekki inngöngu vegna þess að þig vantar vegabréfsáritun eða eitthvað vantar upp á.
  • Þú veikist af hættulegum sjúkdómi sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með bólusetningu
  • Þú talar reiprennandi ensku, en það dugir þér ekki til því fólk skilur ekki stakt orð af því sem þú ert að reyna að segja, sama hversu mikið þú reynir að einfalda hlutina, þú gætir allt eins talað við það íslensku - en þá er gott að fá grunn í tungumálið áður en lagt er af stað.
  • Þú verður veik/ur eða lendir í slysi og þarf að vera lagður/ lögð inn inn á spítala. Reikningurinn hljómar svo upp á hundruði þúsunda, sem hefði verið innifalinn í ferðatryggingunni.
  • Þú hefur aldrei farið í bakpokaferðalag áður og fórst venjulega með stóra, fulla ferðatösku í 2ja vikna frí til Spánar - nú þarftu að ferðast með allt á bakinu í nokkra mánuði og þú gerir þau mistök að taka með þér allt of mikið og því einkenna bakverkir og þreyta ferðalagið sem átti að verða draumaferðin - vegna þess að þú tókst með þér fullt af hlutum sem þú komst svo aldrei til með að nota!
Ráðgjöf um hvernig maður á að forðast ofangreindar aðstæður, er að finna í krækjunum sem nú hafa birst til vinstri