Um Síðuna
Stofnsetning: Nóvember 2004
Umsjónarmaður: Þrúður Helgadóttir
E-mail: thrudur (hjá) bakpokinn.com
Um mig: Ferðaþráin skellti sér yfir mig þegar ég var mjög ung. Ef til vill hefur það verið vegna þess að amma og afi á Hellu voru alltaf mjög dugleg að fara með mig í ferðalög innanlands, eða kannski er það mér bara í blóð borið að vera flakkari og gæti ég haft það frá ömmu minni á Lýtingsstöðum... Eða kannski "veikist" maður kannski svona vegna þess að maður fær ekki útrás fyrir útlandaferðum þegar maður er barn? Allavegana er ég orðin alveg "hooked" á ferðalögum um fjarlægar slóðir frekar en innan Evrópu og get engan veginn haldist á klakanum lengur en eitt ár. Fram til dagsins í dag hef ég ferðast til meirihluta Evrópu, Mið Ameríku, Suður Ameríku, Marokkó og Tælands.
Áhugamál mín eru augljóslega ferðalög, en einnig ljósmyndun, útivist, köfun, hlusta á góða tónlist, kvikmyndir, skemmta mér og njóta lífsins.
Ég er stúdent af Málabraut - Ferðamálalínu hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands, hef lokið helming náms við Leiðsöguskóla Íslands, lokið einni önn í Ecotourism við Universidad Nacional de La Rioja í Argentínu, er með Certificate in Travel: Tour Operator Level 2 hjá ICS Learn viðurkennt af ABTA og svo kláraði ég Adventure-linien í Lýðháskólanum Snoghoj í Danmörku. Ég tala ensku, dönsku og spænsku, skil nokkra frönsku, þýsku og portúgölsku. Hef búið á Íslandi, Danmörku, Chile og Argentínu.
Síðan Bakpokinn.com var stofnuð árið 2004 sem áhugamál á meðan ég stundaði nám í Ferðamálafræði og hefur frá þeim degi vaxið og dafnað mjög vel. Er nú svo að síðan er eins konar athvarf íslenskra bakpokaferðalanga og býr einnig til nýliða í bakpokaferðalögum þar sem margir sem nýta sér síðuna eru að fara í sitt fyrsta sjálfstæða ferðalag. Síðan er unnin í sjálfboðaliðastarfi til að aðstoða fólk við að undirbúa ferðalag til fjarlægra landa, almennt utan Evrópu og hef ég aðeins tekið saman kafla um Evrópu sem "transportation hub" til að komast annað og lengra.
Ef einhver óskar þess að hafa samband við mig er hægt að nota þetta einfalda form hér fyrir neðan til að senda skilaboð:
Skilaboð
free forms



Um Síðuna