Aðalsíða Heimsreisa

Heimsreisa

ATH!:
Ég vil benda á að verð sem tekin eru fram hér á síðuni hafa breyst og hafa ekki verið uppfærð eftir gífurlegt fall krónunnar á síðastliðnum mánuði. Verð verða uppfærð þegar kominn er meiri stöðugleiki í gengið.

Fólk hefur alltaf haldið að maður geti aðeins látið sig dreyma um að fara í heimsreisu. Þetta er ekki satt, reyndu ekki að ljúga þessu að þér því þú getur vel látið verða að þessu! Ég fann alveg frábært fyrirtæki á netinu sem heitir Round the World Flights, en það býður upp á marga möguleika fyrir heimsreisuáhugamenn. Þú kaupir heimsreisuflugið hjá þeim (þú þarft að hafa ákveðnar dagsetningar hvenær þú vilt fljúga frá hverjum stað). Þegar dagsetningarnar hafa verið settar niður getur þú hannað ferðina að þínum þörfum; viltu bara hanga á bestu ströndum hvers lands eða viltu skoða landið? Ætlar þú þá að ferðast með almenningssamgöngum eða leigja þér bíl? Viltu gista á hótelum, farfuglaheimilum, tjaldi eða bara á ströndinni? Þekkir þú kannski fólk í sumum löndunum? Þú getur einnig notað þessa síðu til að hjálpa þér við að skipuleggja ferðina.

Hér koma nokkur dæmi um heimsreisur:

Ísland - London - Nairobi (Kenýa) - landleið - Dar Es Salaam (Tansanía) - Bombay (Indland) - Kuala Lumpur (Malasía) - Brisbane (Ástralía) - Auckland (Nýja Sjáland) - Fiji eyjar - Los Angeles (USA) - London - Ísland.
Verð 185.000 kr + skattar (1 vika - 1 ár)

Ísland - London - Nairobi (Kenýa) - landleið - Johannesburg (S-Afríka) - Sydney (Ástralía) - Auckland (Nýja Sjáland) - landleið - Christchurch (Nýja Sjáland) - Fiji eyjar - Los Angeles (USA) - Miami (USA) - London - Ísland.
Verð: 160.000 kr + skattar (1 vika - 1 ár)

Ísland - London - Höfðaborg (S-Afríku) - landleið - Johannesburg (S-Afríka) - Singapúr - Víetnam - Perth (Ástralía) - landleið - Sydney (Ástralía) - Christchurch (Nýja Sjáland) - landleið - Auckland (Nýja Sjáland) - Fiji eyjar - Cook eyjar - Tahítí - Los Angeles (USA) - landleið - New York (USA) - London - Ísland
Verð: 180.000 kr + skattar (1 vika - 1 ár)

Ísland - London - Kaíró (Egyptaland) - Katmandú (Nepal) - landleið - Delhi (Indland) - Hanoi (Víetnam) - landleið - Singapúr - Ástralía - Nýja Sjáland - Tonga eyja - Samoa eyjur - Los Angeles (USA) - Mexíkó - Kingston (Jamaika) - London - Ísland.
Verð: 243.000 kr + skattar (1 vika - 1 ár)

Ísland - London - Johannesburg (S-Afríka) - Singapúr - Ástralía - Nýja Sjáland - Tonga eyja / Apia eyja - Los Angeles (USA) - London - Ísland.
Verð 150.000 kr + skattar (1 vika - 1 ár)

Hverjir bjóða upp á þessi frábæru tilboð?
www.roundtheworldflights.co.uk

Hvernig bókar maður?

Þú getur sett saman þína eigin ferð á síðu fyrirtækisins, en þú getur einnig hringt í þá eða sent þeim tölvupóst um hvaða ódýra möguleika þeir geti gefið þér eða hvaða áfangastaði þér langar helst að ferðast til. Þeir hjálpa þér að ganga frá greiðslu og það er hægt að spyrja þá um hvað sem er.

 

Aðrir möguleikar :

Airtreks: Airtreks bjóða upp á þann möguleika að velja sér alla þá áfangastaði sem þig gæti dreymt um. Í staðinn hækkar verðið talsvert, en möguleikarnir eru fleiri heldur en hjá Round the World Flights. Airtreks gefa þér einnig möguleika á að hefja ferðalagið á Íslandi, en það er mun ódýrara að skipuleggja sjálfur flug til og frá London.

Travel Bag UK: Travel Bag bjóða upp á 4 mismunandi fargjöld; Escapade, World Explorer, Global Explorer og Star Alliance.

Travel Mood: Þeir eru almennt dýrari, hjá Travel Mood, en eru stundum með góð tilboð sem er þess virði að kíkja á.