Farðu ÓKEYPIS í fríið!

Vissir þú að það eru til alls konar leiðir til þess að snarlækka ferðakostnaðinn með því að fá gistingu ókeypis? Vissir þú jafnvel þó svo þú eigir dýr, þá er ekki endilega nauðsynlegt að setja þau í pössun, eða ef þú ert með blóm að fá alltaf einhvern til þess að vökva þau? Það er til ótrúlegur fjöldi ókeypis lausna fyrir allar tegundir ferðalanga!

Ég ætla hér að taka fyrir þrjá ótrúlega sniðuga möguleika sem eru í boði!

Gestgjafaklúbbar

Þú ert gestur á heimili meðlima klúbbsins

Gestgjafaklúbbar hafa orðið geysilega vinsælir síðustu ár með tilkomu CouchSurfing. Þetta eru klúbbar sem hafa verið til í áratugi og voru stofnaðir til þess að miðla frið í heiminum í gegnum menningarsamskipti, þar sem fólk ferðaðist til framandi landa, bjó hjá innfæddum og kynntist þar með menningu og þjóð á allt annan hátt en sá sem gistir á hóteli. Þetta er alveg sérlega góður möguleiki fyrir þá sem eru að fara í bakpokaferðalag, en meðlimir skipta milljónum! Það þýðir að þú getur farið til hvaða lands sem er í heiminum og gist í fullt af mismunandi borgum og bæjum og alltaf útvegað þér ókeypis gistingu!

Það að gista heima hjá innfæddum í landinu sem er heimsótt hefur marga kosti - þið kynnist nýju fólki, nýrri menningu, fáið ókeypis gistingu og hafið aðgang að eldhúsi til að elda í, svo að matarkostnaður lækkar umtalsvert frá því að borða á veitingastöðum! En auðvitað kemur þar á móti að nauðsynlegt er að virða eigur, tíma og reglur húseiganda, sem þó eru almennt mjög afslappaðir hvað þetta varðar.

Hvernig virkar þetta? Þú skráir þig sem meðlim, fyllir inn í prófílinn þinn, en það er ráðlagt að hafa mynd og sem ýtarlegastar upplýsingar um þig. Því næst leitar þú að meðlimum í landinu sem skal ferðast til og haft er samband við þá og spurt hvort þeir geti tekið við ykkur. Enginn er skyldugur til þess að taka á móti gestum, en þeir sem eru í klúbbnum á annað borð kunna virkilega að meta félagsskapinn svo það er oftar en ekki að fyrirspurnirnar leiða til jákvæðs svar. Gert er ráð fyrir að gestir séu almennt ekki fleiri en tveir, og þeir gisti almennt ekki lengur en viku á hverjum stað.

Þarft þú að taka á móti gestum líka? Nei - maður getur valið hvort maður vilji taka á móti gestum eða ekki. Margir eru mikið uppteknir og oft eru heimilisaðstæður ekki til þess að taka á móti ferðalöngum, og ekkert rangt við það. En af eigin reynslu get ég sagt að ef þið mögulega getið tekið á móti ferðalöngum, þá er það þess virði. Þetta er ótrúlega skemmtileg reynsla að fá fólk alls staðar af úr heiminum í heimsókn - félagsskapurinn er frábær, en það besta við það að fá ferðalangana í heimsókn er að þarna myndast oft á tíðum ævilangur vinskapur. Það er fátt skemmtilegra en að eiga vin í hverju horni heimsins, og geta farið að heimsækja þá á sínum heimaslóðum!


Hér fyrir neðan finnur þú klúbbana:

 

Húspössun

Þið eruð í þeirra húsi þegar þau fara í fríið sitt

Húspössun er frábært tækifæri fyrir fjölskyldufólk sem og einstaklinga, því þið bjóðið ykkur fram til þess að passa upp á hús meðlima á meðan þeir fara í frí annars staðar. Þið borgið ekkert fyrir gistinguna (í 95% tilfella), því þetta er fólk sem á oft dýr eða plöntur sem þarf að sjá um, eða efnamikið fólk sem vill að það sé einhver í húsinu á meðan þau eru í burtu til þess að koma í veg fyrir innbrot á meðan þau eru ekki heima og þar koma húspassararnir inn. Tímabilið sem þarf að passa húsið getur verið allt frá einni helgi upp í marga mánuði, en hver og einn finnur tækifæri sem hentar sér. Mörgum heimilum fylgir sundlaug og jafnvel bíll. Meðlimir eru staddir út um allan heim, svo hvort sem þú ert að leita að ótrúlegu húsi með útsýni yfir ströndina á Flórída, sveitabær í Englandi eða flott íbúð í stórborg eins og New York, þá eru möguleikar við ykkar hæfi.

Sama gildir um ef þið farið í frí og ykkur vantar einhvern til að passa húsið ykkar, húsdýrin og plönturnar, þá getið þið skráð ykkur hjá klúbbnum og fengið áreiðanlegt fólk til þess að vera félagar dýranna ykkar á meðan þið eruð í burtu, og þar með farið áhyggjulaus í fríið, og borgað ekki krónu fyrir þjónustuna.

Hér fyrir neðan finnur þú klúbbana:

 

Húsaskipti

Þið eruð í þeirra húsi, þau í þínu

Kannist þið við kvikmyndina "The Holiday" með Jude Law og Drew Barrymore? Hún fjallar um svokölluð húsaskipti. Þessi möguleiki hefur verið til í áratugi en verið fremur óþekkt fyrirbæri á Íslandi. Þetta gengur út á það að þú og annar meðlimur klúbbsins parið ykkur saman og ákveðið að skiptast á húsum/íbúðum - hinn meðlimurinn fer í frí til Íslands og gistir í þínu húsi á meðan þú gistir í hans húsi, hvort sem það er í Taílandi, Kanada, Suður Afríku eða Prag! Þetta kerfi er í mörgu nokkuð líkt húspössun, nema hér er gert ráð fyrir að báðir aðilar skiptast á íbúðum á sama tíma, í staðinn fyrir að þú passir hús hinnar manneskjunnar meðan hún er annars staðar í fríi. Þetta er leið sem hentar fjölskyldufólki frábærlega, enda eru flestir meðlimir klúbbsins einnig fjölskyldufólk og því gert ráð fyrir barnaherbergjum - og rúsínan í pylsuendanum er auðvitað sú að, eins og allt sem hér hefur verið talið upp, gistingin er ókeypis!

Hér fyrir neðan finnur þú klúbbana:

 

 

Lærðu að lifa af úti í náttúrunni

Margir af fylgjendum síðunnar eru miklar ævintýramanneskjur. Það er því ekki seinna að vænna en að við höfum fundið það rétta fyrir ykkur Indiana Jones típurnar! Hvernig hljómar það að læra að kunna að bjarga sér úti í náttúrunni, ein/n og yfirgefin/n og án allra tóla og tækja? Læra að lifa af, án þess að verða hungurmorða eða deyja úr þorsta, en læra að veiða sér til matar og finna vatn, kveikja eld án eldfæra og svo margt fleira. Og síðast en ekki síst, að læra að komast aftur til byggða heilu að höldnu! Í Mexíkó er haldið 10 daga námskeið, SURVIVE IN THE WILD. .. Skoða nánar >
 

London !

Góðar fréttir! Eins og margir vita, er London svokölluð umferðarmiðstöð Evrópu - öll ódýrustu flugin út í heim fara þaðan, auk þess sem ódýrustu flugin frá Íslandi lenda í London. Nú er kominn nýr upplýsingadálkur sem mun eflaust reynast mörgum vel! Hann heitir því einfalda nafni "LONDON" og fellur undir aðaldálkinn "Undirbúningur" og "Flug". Þar er að finna upplýsingar um flugvellin...a fimm og hvernig maður kemst á milli þeirra og eins inn í London, upplýsingar um ódýra gistingu (frá 1.650 kr/nótt), tónleika, leikhús og hina ýmsu vinsælu áfangastaði í London! ... Skoða nánar >